Um Verslunarmannahelgina verður hin sívinsæla Kjötsúpuhátíð á Hesteyri haldin hátíðleg. Hátíðin fer fram á laugardeginum um Verslunarmannahelgi hvert ár og er hugsuð fyrir alla fjölskylduna. Það eru Hrólfur Vagnsson vert í Læknishúsinu og aðstoðarfólk hans sem matreiða Kjötsúpuna eftir uppskrift ættmóðurinnar Birnu Hjaltalín Pálsdóttur sem á og rak Læknishúsið á Hesteyri.
Eftir súpuna er boðið upp á kaffi og nýbakaðar pönnukökur með sykri og svo verður hin skemmtilegasta dagskrá sem Birna Hjaltalín Pálmadóttir mun stýra. Þar verða leikir, söngur, fíflagangur og almennt glens og gaman uns gengið er í fjöru þar sem tendraður verður varðeldur og sungið fyrir hafið.
Það verður siglt frá Bolungarvík til Hesteyrar með Hauki Vagnssyni á Hesteyri ÍS 95. Siglingin tekur aðeins um klukkustund.
Hægt verður að velja á milli tveggja brottfarartíma:
14:00 frá Bolungarvík, til baka frá Hesteyri kl 22:00.
16:00 frá Bolungarvík, til baka frá Hesteyri kl 24:00.
Endilega bókið tímanlega hér til hliðar þar sem um takmarkaðan sætafjölda er að ræða.
Einnig er hægt að leita sér upplýsinga hjá:
-Haukur Vagnsson í síma 862 2221
-Hrólfur Vagnsson í Læknishúsinu í síma 899 7661
Fatnað í samræmi við veðurspá
Góða skapið!
Vinsamlegast klæðið ykkur vel í samræmi við veðurspá
Hundar og önnur gæludýr óheimil
Öllum er velkomið að troða upp með söng, leik eða með öðru skemmtiefni
Söngolía fæst á staðnum