Lónafjörður er fallegur fjörður innarlega í Jökulfjörðum. Fjörðurinn liggur milli Veiðileysufjarðar og Hrafnfjarðar. Engin hús eru í Lónafirði, en Kvíar eru rétt utan fjarðar vestan til.
Oftast siglum við með farþega í Miðkjós en einnig förum við á aðra staði eins og í Rangala eða inn að Sópanda. Einbúi skilur að Miðkjós og Sópanda.
Mikið er gengið úr Miðkjósinni um Snókarheiði og yfir að Hornbjargsvita.
Sigling með farþegabátnum Hesteyri ÍS 95, frá Bolungarvík til Lónafjarðar
Hlý viðeigandi föt og búnað í samræmi við veðurspá